mánudagur, júní 08, 2009

Södd og sæl :)

Ahhh það er sko gott að vera í 3ja daga fríi :D

Nýti tækifærið og elda eins og ég get. Var að enda við að háma í mig spakk og haggetí ala moi ;) ummmmmm... Á föstudaginn var það famelí kvöld með heimatilbúinni pizzu :P. Á laugardaginn fékk ég glás af yndislegum stelpum til mín í sushi.. Er ánægð með hvað þær stóðu sig vel í því ;)
Það var allaveganna ekki mikið eftir.

Við dömurnar fórum svo í langferðabíl til Bengtu minnar þar sem var drukkið, spjallað, hlegið, sungið í singstar og teknar myndir ;) Alveg eðal stelpukvöld! Fór meiraðsegja í bæinn þar sem Láran mín dældi í okkur skotum :D Þetta var svakalegt stuð! Ellen tók reyndar bjartsýniskast og ákvað að gera heiðarleika tilraun ;) Það tók bara örfáa klukkutíma að fá hana í bakið aftur... hehe.. en jæja.. hvað um það.

Svo er ég bara búin að vera að njóta þess að vera í fríi. Slaka á og hafa það gott í fanginu á Herði ;)
Tókum líka heimilið í gegn og stelpan fyllti á ísskápinn. Í kvöld er það svo heimadekur og enn meiri kósíheit ;D
Ahhh... þetta er lífið.

Takk elsku yndislegu vinkonur mínar fyrir frábært stelpukvöld á laugardaginn.
:*

laugardagur, maí 23, 2009

Gleði Gleði :)

Já.. það er sko gaman að vera til!

Er orðin stúdent :) Það kom að því... Takk fyrir mig og daginn elsku vinir og fjölskylda :*
Er annars búin að vera að njóta þess að vera í smá fríi eftir prófin undanfarna viku. Við Hörður höfum verið að njóta veðurblíðunnar í ystu æsar og út um allt. Við fórum í miðbæinn í sólina, einn daginn í sund í sólinni, fórum líka í laugardalinn að kúra á teppi í sólinni, út á pall að kúra á dýnu í sólinnu :D Alveg yndisleg vika bara! Mikið af ísferðum kaffi og kúri!

Fórum líka út að borða á Argentínu með Pabba og Sessu sem til að fagna stúdentnum ;) það var æði líka. Svo er ég að fara að byrja í nýrri vinnu á mánudag og er bara þrælspennt!

Knústi svo allar vinkonurnar og famelí í dag og naut mín innilega! *knÚs*
Fékk frábæra viðurkenningu frá öllum (sem Hörður útbjó).

Sumsé algjörlega stórkostlegt líf hérna megin!

Písát beibís ;)

laugardagur, apríl 25, 2009

Kosningardagur

Já, í dag er kosningardagur... jú og afmælisdagurinn hennar Ágústu Lilju "tengdó" ;) Til hamingju með það :)

Þetta er búinn að vera afar ljúfur dagur bara. Ákvað að taka mér einn dag í pásu frá lestri ;) ... það er alveg nauðsynlegt öðru hvoru.
Sóttum Bryndísi Evu í morgun og erum búin að hafa það voða gott.
Erum m.a. búin að rölta út í Árbæjarskóla og kjósa. Kíktum svo í kaffi og vöfflur til Pabba og Sessu.

Framundan er svo rómó dinner og kósýkvöld með myndarlegum gæja ;) ... með annað augað á kosningarvöku kannski ;)
Matseðillinn er: lambafille, tvíbakaðar kartöflur, bernaise sósa og meðlæti :P ... uhmmmmmm.. skolað niður með smá rauðvíni... næs :)


Annars verð ég frekar mikið utan þjónustusvæðis bara næstu 3 vikurnar allaveganna... vona bara að allir njóti kvöldsins eins mikið og ég ætla að gera ;)
Leidör pípoll!

föstudagur, mars 27, 2009

Breakfast of champions ;)

Var að enda við að nærast á ofsalega góðri Miso súpu sem ég var að prufa að gera. Hún kom bara líka svona vel út :) Skellti tófú í hana og allt.. Voða gott í mallan.

Fékk að heyra voða ljúfa tóna frá Lúkasi kúti í morgun þegar hann vaknaði.. hann var víst að læra lag í skólanum sem heitir: Er ekki jörðin fyrir alla. Þetta var voða sætt hjá honum og ekki oft sem maður fær svona morgunsöng við rúmið ;)
Eins var komist að þeirri niðurstöðu að Lúkas væri broddgöltur, Hörður rostungur, ég hafmeyja og Mirra tígrisdýr.
Jújú.. svona er þetta bara hjá okkur á morgnanna ;)

Gott að taka því aðeins rólega þar sem gærdagurinn var frekar bissí hjá mér. Lærði, fór í próf, kíkti á Dóru í vinnuna, keypti pakka, sótti Lúkas, sótti Hörð, sótti Bryndísi Evu, heima að dúllast og borða, skila Bryndísi, út í afmælis sushi með Bengtu og fleirum og svo endað á kaffihúsi.
Rosalega næs dagur en bissí.

Í dag er það svo franskan og Gioza gerð... á morgun er það dansiball :D
Svo er vorið bara aaaaalveg að koma :D

fimmtudagur, mars 05, 2009

Sko mína!!

Ótrúlega dugleg að blogga bara!

Var að koma inn úr ótrúlega hressandi göngutúr með Dóru og Mirru :) Það er svo ljúft að fara út að fá sér ferskt loft.
Annars mokast tíminn bara áfram og allt í einu er aftur að koma föstudagur. Þá er ég akkúrat 29 ára og eins vikna á morgun ;D spurning um að fagna því?
Ég heyrði því fleygt í dag að mögulega yrði pókerkvöld hér heima á morgun þannig maður fær sér bara bjór og rústar strákunum í póker ;) það er fínn fögnuður!

Annars var ótrúlega gaman í afmælinu mínu og í raun allan afmælisdaginn... Meirað segja var gaman alveg síðan kvöldið fyrir afmælisdaginn... þannig þetta var alveg eins og þetta á að vera ;)
Hörður fór með mig í óvissuferð á fimmtudagskvöldið. Það var bundið fyrir augun á mér alla leið og læti. Þetta var án efa yndislegasta og rómantískasta kvöld lífs míns!!!
Ég nenni nú ekki að útlista þessu nákvæmlega (again) en þegar hann tók frá augunum á mér var niðamyrkur, róleg tónlist, milljón kerti, dúkað borð með sushi og hvítvíni og við ein saman á einskonar sviði. Stórkostlegt kvöld alveg!

Svo á afmælisdaginn minn fékk ég bakarísmorgunmat og rósir frá Herði, sem fór líka með eina rós til mömmu fyrir að hafa fætt mig fyrir 29 árum :D *BráðN*
Svo kíkti famelían í kaffi og kökur og svo var það partý. Ég fékk fullt af hvítvíni og freyðivíni, blóm, kaffikvörn, irish coffie glös og gjafabréf í Smáralind. Er alveg í skýjunum.

Svo er bara helgin að koma.. stefnan er á póker á morgun og svo er ég að gæla við að matreiða innbakað lambafille og bernaise handa okkur Herði á laugardaginn...
Afhverju ekki ;)

sunnudagur, febrúar 15, 2009

Jájá.. eigum við að segja blogg 6 sinnum á ári?

Ja hérna... þetta er alveg að láta lífið bara þetta blogg hér..
Tíminn virðist bara fara í allt annað en blogg, enda er ég orðin mjög löt við að fara bloggrúnta sjálf :S
En ég held ég geti aðeins skellt hér inn nokkrum línum :)

Ég er eins og er að sötra kaffi yfir skólabókunum. (Þá virðist maður alltaf finna tíma til að netnördast eitthvað). Er búin að eiga alveg yndislega helgi með gaurunum mínum :)
Þessa helgi er ég með 2 gaura þar sem Lúkas er hjá okkur Herði þessa helgina. Við erum búin að hafa það þvílíkt næs bara. Fengum okkur brunch í gær og fórum svo í bæjarferð þar sem við kíktum í kolaportið og á kaffitár ofl. Fórum næst í sund og svo heim í sushigerð og vídjógláp.
Við Hörður höfðum svoldið late rómó dinner í tilefni af Valentínusardeginum. MmmMmm Sushi og hvítvín klikkar bara ekki.
Í dag fórum við í göngutúr í rigningunni og svo heim að búa til heitt súkkulaði og borða kringlur.
Í kvöld verður svo helgarsteik í matinn.

Þetta er búin að vera alveg eeeeeeðal helgi og er maður alveg endurnærður og tilbúinn í nýja viku eftir þetta :)
Svo styttist óðum í mikla gleði í endan á mánuðinum :)

En já... þar til næst ;)

miðvikudagur, desember 03, 2008

Í fréttum er þetta helst...

Ég er að í próf í næstu viku. Ég er ekkert spennt en verð voða glöð þegar ég er búin :)
Er að farað læra og vinna þangað til.
Ekkert annað... ekkert skemmtilegt! EKKERT! BARA LÆRA OG VINNA!!
en þar allt í læ.. ég fékk að fara út að borða með kallinum mínum á sunnudaginn á jólahlaðborð og það var yndislegt!! MMmmMmmmmmmMMmmMM...... ummmmmm....
En já farin að læra.. Bless.
Sjáumst eftir 12. des ;D;D;D;D;D
Jorsinsírlí
Ellen

sunnudagur, nóvember 09, 2008

Ljúfur sunnudagur

Þá er runninn upp þessi fallegi sunnudagur og ég útsofin og fín. Yndislegi kærastinn minn var svo ljúfur að vera búinn að láta renna í heitt bað fyrir mig í gær eftir vinnu. MMmmmMMmmm það var mjög ljúft. Áttum mjög ánægjulegt gærkvöld svo saman. Frekar róleg bara þar sem Lúkas er hjá okkur. Snæddum slátur, sötruðum bjór og spjölluðum um allt milli himins og jarðar :) Alveg svaka næs..
Annars renna dagarnir voða mikið saman þegar maður er í vaktavinnu og þá breytir voða litlu hvaða vikudagur er. Var í vaktafríi um daginn á þriðjudegi og efndi þá til rómantísks kvöldverðar (4 rétta) handa mér og mínum heittelskaða. Við sötruðum rauðvín og gæddum okkur á humar og nautalund ásamt fleiru og létum okkur engu varða að flestir væru líklegast að borða kjötfars heima hjá sér á þriðjudagskvöldi ;)

Annars fer tími minn að mestu leyti í að læra þegar ég er ekki að vinna.... hmmm .... eins og ég ætti eiginlega að vera að gera núna... prófin nálgast eins og óð fluga.. ÓÐ FLUGA SEGI ÉG! Fúff... þarf að læra. Ég stefni svo að því að vera skemmtilegasta vinkona í heimi í desember þegar þau eru búin :D Þetta var til allra vinkvenna minna sem ég er búin að vanrækja..
En núna atla ég að borða rúnstykki sem Hörður er að kaupa handa mér og svo fer ég að læra...

Leidör pípoll :*

fimmtudagur, október 09, 2008

Það held ég nú..

.... mikið svakalega tekst mér að leyna því vel hvað ég er búin að missa allt nenn í blogg! Ha? Það fattar það enginn er það?

Ég er svo ekki að nenna þessu að ég skil það ekki :/
Fer bara á Facebook í staðinn... Ég sökka.. ég veit!

En annars er ég bara hress :)
Er byrjuð að vinna á Grand hótel og líkar mjög vel. Er á vöktum sem eru annað hvort á daginn eða kvöldin. Er ekki eins mikið í fríi um helgar en þar á móti er ég oft í fríi á virkum dögum. Það hentar vel til að læra :)
Mér gengur svaka vel í skólanum... eftir einungis rúmt ár verður stelpan vonandi LOKSINS LOKSINS búin með stúdentinn ;)

Annars er það sem er skemmtilegast fram undan hjá mér, stelpukvöld pour moi eftir 9 daga. Þar verður pizza, rauðvín og hlátur á dagskrá :D
Allar skemmtilegar stelpur eru velkomnar ;)

Annars er ég svo mikið jólabarn núna að ég get ekki beðið eftir að fá upp öll jólaljós, jólalög og snjó :D
MmMmMmMmmmm......

Annars sendi ég bara ástar- og hamingjustrauma til allra.
*Knúsálínuna*

föstudagur, september 05, 2008

Maddý afmælisstelpa!

Í dag er Maddý frænka orðin 17 ára skvísa :) Til hamingju með daginn dúlla.
Í tilefni dagsins bjó ég til stóran pott af rjómapasta sem er uppáhalds réttur dömunnar. Famelíenn kom svo saman og gerði þessu góð skil ásamt smá rauðvíni ;) Svo var það Mosfellsbakarískaka :) MmMmmMmMmmmmm.

Átti alveg yndislega kvöldstund í gær með kallinum mínum :)
Kíktum í late dinner á devitos :P *slurp* og röltum svo laugaveginn í kvöldblíðunni. Það var æði.. skoðuðum nokkur af mínum gömlu heimilum og röltum svo tilbaka. Verrí næs :)

Svo á Miðvikudaginn fórum við á æðislega tónleika á Nasa í boði pabba. Fórum sumsé á Klezmer Kaos sem Heiða frænka mín er að spila í ásamt 4 frönskum gaurum. Mjöööööööög kúl tónleikar. Mæli með þeim næst þegar þau koma.

Svo er auðvitað lærdómurinn kominn á fullt swing... sé það að það þýðir sko ekkert slugs í þessum málum ef ég ætla að ná þessu með style... eins og vaninn er ;)
Talandi um... best að farað læra.

Bæjó.

föstudagur, ágúst 15, 2008

Ég er komin þessa leið...

... einfaldlega til að segja þér...
að Ástrós frænka mín kann þetta lag og söng það fyrir mig í gær hástöfum á meðan hún glamraði á píanóið hans pabba síns. Þvílíkur performans! Þetta var snilld ;)
Mér finnst eitthvað svo skondið við að heyra lítil börn syngja lög sem eru að óma á fm 957 ... Soldið weird að heyra: I kissed a girl and I liked it.. frá lítilli 6 ára ;)
Svo er Lúkas (7 ára) búin að vera að raula: She hit the floor, she hit the floor...... low low low low... já eða keep bleeding, keep keep bleeding love..
hehehe... þetta síðasta kannski mér að kenna. Bara svo lengi sem þau fara ekki að apa eftir tónlistarmyndböndunum þá er þetta líklegast í lagi ;)

Annars er ég bara eitthvað að tsjilla... var að búa mér til latte og er að manna mig í að fara að vera dugleg. Er búin að vera óttalega ónýt eitthvað.. nýbúin á pensilínu og eitthvað bleahhhh....

En við fengum góða gesti á Miðvikudaginn þegar Dísella og Dóra komu í grill og rauðvín. Það var verulega næs. Finnst alltaf jafn gaman þegar Dísellan er á landinu og við getum hittst og spjallað yfir kaffibolla :D
Hlakka verulega til í des því þá verður hún lengi lengi lengi!!!

Þessi helgi stefnir nú ekki í mikið stuð.. er víst að farað kjallarast með famelíunni... klára þetta litla sem er eftir svo Ómar gamli geti nú flutt þangað.

Well.. núna er ég farin að vera dugleg... þetta gengur ekki...
Tsíjá

mánudagur, júlí 28, 2008

AfmælisDóra :)

Í dag á afmæli hún Dóra mín :) Til hamingju með daginn snúlla *knÚs*
Í tilefni af þessum merkisviðburði mun ég snæða sushi með henni og fleirum... það sem maður leggur ekki á sig fyrir vini sína.

Annars er ég ótrúlega róleg í bili.. er ánægð með að vera komin heim. Er búin að vera á miklum þvælingi undanfarið og er mjög ánægð með að vera bara heima hjá mér um versló. Nenni ekki meiri ferðalögum í bili.
Ekki það að helgarferðin okkar í Galtalæk var alveg frábær. Það er svo fallegt þarna og við Hörður fengum mest kósý bústaðinn.
Við fórum í göngutúra um svæðið, tróðumst í gegnum runna og móa, fórum í vatnsbyssu slag við Lúkas, borðuðum góðan mat og kúrðum saman á teppi í sólinni. Þetta var alveg yndislegt og við ætlum svo sannarlega að fara þangað aftur. Það var góður félagsskapur og fallegt umhverfi.

En eins og ég sagði þá er einmitt planið að vera í rólegheitum um versló að senda væmin sms til Harðar sem verður í Dublin ;)
Svo er stefnan að fara í Batman bíó á mánudag/þriðjudag og allir velkomnir með ;) ... en ég býð ekki .. hje hje..
Síðar dúllur.

mánudagur, júlí 14, 2008

Weapons to maximum!

.. neinei.. barað djóka ;)

En jú.. stelpan er á lífi og bara þrælhress. Er búin að vera að bralla svo mikið að ég hef bara ekkert verið að gefa mér tíma til að blogga..
Alltaf nóg um að vera einhvern veginn.

Fór annars á Ísafjörð á Act alone í byrjun júlí. Það var frábært!! Hörður var með einn einleik í þessu prógrammi og vildi það svo skemmtilega til að hann fékk verðlaun fyrir besta leikinn. Það var auðvitað alveg rúsínan í pylsuendanum. Enda er hann alveg bestasti leikari sem ég þekkji ;) híhíhí..
Þessi einleikjahátíð er alveg frábær og við ætlum pottþétt að fara aftur að ári.
Ólöf og Robbi eru auðvitað bestu gestgjafar sem hægt er að hugsa sér og fengum við bara sér herbergi í kjallaranum hjá þeim ;)
Á Ísafirði smakkaði ég í fyrsta skipti selkjöt, folaldakjöt og hreindýragrillkjöt. Fannst það allt gott :D Ólöf er svo góður kokkur!
Fólkið á Ísafirði er svo líka bara alveg yndislegt og við vorum velkomin allstaðar sem við fórum. Takk fyrir okkur :)
Svo voru það nokkrir dagar sem fóru í frí áður en við fórum svo á ættarmót/útilegu hjá famelíunni minni. Það hittist svo skemmtilega á að við Hörður og Lúkas fengum bara að vera í tjaldvagninum hans pabba, svo við sluppum við að tjalda í rigningunni. Það var þrælgaman þar og að ættarinnar sið var mikið um söngva og tónlist.. bara eins og þetta á að vera :D

Annars er líklegast aðalfréttin í mínu lífi um þessar mundir að ég er ekki lengur að vinna hjá Húsasmiðjunni og er að leita mér að nýrri vinnu.
Það eru mikil viðbrigði að vera allt í einu komin á atvinnumarkaðinn eftir 8 ár en ég er mjög spennt og hlakka til að finna mér einhvern frábæran stað til að vinna á.

En núna ætla ég að fara að knúsa kallinn minn svaka mikið og svo farað máta nýju koddana sem ég keypti handa okkur í Ikea í dag :D
Auf Wiedersen

laugardagur, júní 14, 2008

Komin heim :)

Eins og það er gaman að ferðast til útlanda þá er alltaf jafn ljúft að koma heim til sín aftur.
Ameríkuferðin gekk mjög vel og var ég svo heppin að fá auka pláss fyrir löngu lappirnar báðar flugferðir þannig það fór vel um mig þar :D
Svo er kominn þessi fíni afþreyingar skjár svo við Bengta gátum glápt á þætti og bíó til að stytta okkur stundir.
Það var ótrúlega gaman að hitta Dísellu og Teddy, sjá loks hvernig og hvar þau búa og auðvitað knúsa voffana þeirra.
Vegna skýja fóru fyrstu 3 dagarnir aðallega í mollin... Æ Æ... okkur Bengtu fannst það eiginlega ekkert leiðinlegt. Fórum samt líka að skoða Princeton bæinn þar sem Dísella og Teddy voru í skóla og kynntust. Voða kósý bær.
Kíktum svo seinna í NY þar sem við fengum túrsta rúnt a la Teddy. Fórum líka í göngutúr um Soho hverfið hvar við sáum Söndru Bullock og Ryan Reynolds vera að leika í atriði í myndinni The Proposal :) Mjög gaman að verða vitni að því.
Daginn eftir fórum við svo aftur til NY en þá var komin hitabylgja sem varði í 4 daga svo við fórum eftir sólsetur til að lifa þetta af.
Þá fórum við að Ground Zero eins og kanarnir kalla þetta og sáum hvar World trade center var. Frekar spes að sjá það, bara 2 göt eiginlega full af vinnuvélum og rústum. Svo fórum við í göngutúr að finna leigubíl til að fara með okkur á Time Square.
Það er sko ekki eins og í bíómyndunum skal ég segja ykkur.. það er ekkert nóg að flauta, veifa og kalla taxi og þá kemur hann. Neinei.. við þurftum að rölta heillleingi veifandi leigubílum áður en loksins einn stoppaði sem var tómur.
Sá var með Beethoven konsert í blasti og lækkaði sko ekkert í þegar við komum.
Það var afskaplega sérstök tilfinning að rúnta um NY á laugardagskvöldi í yellowcab með Beethoven í botni að skoða mannlífið :)
Eins og það var gaman að upplifa New York í fyrsta skipti í alvöru þá fannst mér hún ekkert brjálæðislega heillandi. Hún er mjög skítug og það er vond lykt allstaðar, klósettin eru auðvitað viðbjóður og þar sá ég t.d. konu standa fyrir utan Starbucks að kreista á sér bólu fyrir framan lítin spegil sem vinur hennar hélt á fyrir hana.. Hmmm... ekkert spes að sjá það.
Svo er bara svo skrítið fyrir mann Íslendinginn að fara í subway og sjá allskonar gettó lið og gengi með buxurnar á hælunum og sokk á hausnum.
Svo var t.d. einn með okkur í subway lest sem sat og öskraði allan tímann: You bastard! You lied to me you bastard! I want my money you bastard.. you owe me money you fucking bastard... osfrv. Þetta æpti hann allan tímann. En svo þegar kom að stoppinu hans þá tíndi hann saman pokana sína og gerði sig reddý til að fara út, en hætti aldrei að æpa. Mjög weird að sjá.
Já það var sko ýmislegt sem maður upplifði í útlandinu.

Þetta var rosa góð ferð og það fór svakalega vel um okkur heima hjá skötuhjúunum. Dísella sýndi okkur matargerðar listir sýnar og Teddy sýndi okkur grilllistir. Drakk mikið af heineken lite (mmmMMmmM) og þónokkrar margaritur. Ég verslaði alveg glás og óverdósaði af hamborgurum.
Mér finnst ótrúlega gott að vera komin heim þar sem vatnið er hreint og bragðast vel og þar sem mér finnst ég í alvöru verða hrein eftir sturtu.
Nú vantar bara kallinn minn heim og þá er ég sátt :)
Jæja... nú ætla ég að fá mér salat.. með tómötum... sem eru EKKI með salmonellu ;)
Sjáumst fljótlega!